Skilmálar

1. GILDISSVIÐ
Þessir skilmálar gilda um sölu á vörum og þjónustu Filipino Store ehf. til viðskiptavina.

2. ALDURSTAKMARK & ÖNNUR SKILYRÐI
Viðskiptavinir þurfa að hafa náð 20 ára aldri til þess að geta keypt vörur á filipino.is. Við stofnun aðgangs á filipino.is þurfa viðskiptavinir að auðkenna aldur sinn með rafrænum skilríkjum. Síðan þarf viðskiptavinur að auðkenna aldur á 30 daga fresti. Viðskiptavinir bera sjálfir ábyrgð á því að aðgangsauðkenni komist ekki í hendur einstaklinga sem hafa ekki náð 20 ára aldri.

3. AFHENDING
Allar vörur sem Filipino Store ehf. býður til sölu í vefverslun sinni eru á lager á Íslandi og eru afgreiddar úr vöruhúsinu samdægurs eða síðasta lagi næsta virka dag. Sendingarkostnaður bætist við verð vöru í lok kaupferils og áður en greiðsla fer fram. Ef vara reynist ekki til þegar hún er pöntuð vegna rangrar skráningar í birgðahaldi þá munum við hafa samband við viðskiptavininn og bjóða aðra vöru í staðinn eða endurgreiðslu.

4. SKILARÉTTUR
Hægt er að skila allri vöru nema matvöru (matur, bjór og vín) innan 14 daga frá því viðskiptin fara fram. Vegna eðlis bjórs, víns og annarar matvöru sem Filipino Store ehf. selur er ekki hægt að skila vörum af þessu tagi gegn nema samkvæmt sérstöku samkomulagi þegar um er að ræða kaup á miklu magni fyrir veislur og þess háttar.

5. VERÐ OG VERÐBREYTINGAR
Öll verð eru gefin upp í íslenskum krónum með virðisaukaskatti, ýmist 11% eða 24%.

6. PERSÓNUVERND
Filipino Store ehf.fer með allar upplýsingar um viðskiptavini sem trúnaðarmál. Filipino Store ehf. geymir ekki upplýsingar um greiðslukort þar sem viðskiptin fara fram á vefsvæði Mypos.

7. GREIÐSLUMÖGULEIKAR
Hægt er að greiða með með öllum helstu greiðslukortum.

8. VARNARÞING
Rísi ágreiningur vegna þessara skilmála skal hann rekinn fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.

9. UPPLÝSINGAR

Filipino Store ehf.

Íslensk kennitala: 611221-2900 Íslenskt virðisaukaskattsnúmer: 143368